21.01.2008 16:57:10 / jara109

Engin dagsetning

Blessuð, já það er langt síðan ég hef bloggað! ég hef hreinlega bara ekki nennt því. Síðast þegar ég bloggaði var ég á leiðinni í skemmtiferðasiglingu á karabíska hafinu, ég væri til í að spóla til baka á þann tíma aftur :) þetta var ótrúlega gaman! Pétur kom til okkar tvem dögum áður en við fórum. Við keyrðum til Miami og fórum í stóra skiptið okkar, 3000 manns um borð sirka. Allt innifalið (fyrir utan áfengi), þetta tók 5 daga og það var bara alveg nóg, var komin með pínku leið á þessari hreyfingu þó að hún hafi alls ekki verið mikil en ég fann samt fyrir henni og mér var óglatt :whut: strákarnir fundu ekki neitt.

Á skipinu var boðið upp á sýmsar ferðir á Cayman Island, fullt af köfunarferðum, kafbátar, verslunarferð, ströndin, og synda með Stingray, þetta tengdist allt einhverjum fiskum og sjó, og þeir sem þekkja mig ættu að vita að ég hata fiska og ég þoli ekki sjó, ég þori ekki lengra en rett til að bleyta tærnar á mér! ég bara get ekki verið í sjónum og ekki vitað hvað er undir mér, ég bara höndla það ekki, ég er með mestu fóbíu gagnvart fiskum og sjó. En ég veit ekki hvað gerðist þarna!! að því að ég er svona leiðinleg þá ákváðum við bara að rölta um bæinn og versla og skoða okkur um, en svo seint um kvöldið, kvöldið áður en við komum í land þá bara ákvað ég að skella til! skelltum okkur bara í Stingray tour! já fínt já sæll.                                       Þeir sem ekki vita hvað það er, þá er þetta bara skata með oddi á skottinu sína eða hvað það nú er, svona skata drap ástralann og krókódílamanninn Steve Erwin! ég skil ekki hvernig ég þorði þessu 8|8|  Við sigldum langt frá landi, og mér leist ekkert á þetta. Það var auðvitað mjög djúpt til botns, en eftir þó nokkurn tíma vorum við komin á staðinn, glær sjór, og mjög stutt til botns, svo ég gat séð allt sem var undir mér :haha: bara lengst í rassgati varð alltieinu bara fjara, ótrúlega skrítið, en geggjað flott, alveg glær sjórinn, hvítur sandur og allt í morandi í stingray skötum! og þær voru risastórar!! og stundum syntu ponku litlar skötur fram hjá manni eða syntu á lappirnar á manni og þá trylltist ég...ICH! :whut:

En þið sjáið þessar myndir á www.myspace.com/jarasolekki feimin við að adda mér inn!! :D En þetta var þvílikt gaman! myndi gera þetta aftur ef ég gæti og ekki vera jafn hrædd :( hehe

http://www.cruiseandstay.net/images/Stingray-CitycaribbeanCruise.gif - hérna er ein mynd, tók hana af netinu bara og ég náði ekki að setja myndina sjálfa á netið. En svona leit þetta úr í sjónum, skötur útum allt! en farið á þennan link, verðið að sjá myndina svo Þið skiljið hvað ég er að tala um :haha:

daginn eftir komum við til Jamaica. Við skráðum okkur í Dunn's River falls sem er víst voða frægur foss þarna á Jamaica, http://www.beautifulplaces.org/Jamaica/Jdunns.jpg - gat því miður ekki sett mynd hérna inn svo ég þarf að setja aftur bara link, veit ekki afhverju þetta lætur svona, en þetta var ótrúlega gaman! svo fallegt þarna líka. Lentum líka í geggjuðu veðri alla dagana þetta var bara æðiæðiæði!!! :lol: Eftir labbið upp fossinn fórum við í Dolphin Cove, þar voru einhverjir höfrungar og skötur og hákarlar og slöngur og drasl, einhver skógur me strönd og aðsjálfsögðu verslunum til að græða á okkur. Þeir á Jamaica eru ekkert smá lúmskir maður...allir bestu vinir manns og reyna svo að selja manni á okurverði fyrir skitið armband sem dæmi :$ hehe. við vorum búin að vera í svona 1 mínútu við fossinn þegar við komum þegar einhver jamaica gaur örugglega búin að reykja slatta hehe eins og allir þarna, þá var okkur boðið jónu eða eitthvað. Svo var bara endalaust ''hey my friend, come'' svo buðu þeir okkur drasl, hehehe ótrúlegir, það er bara eðlilegast í heimi að vera skakkur þarna og það voru það örugglega allir sem við hittum. Ég hefði viljað eyða meiri tíma á Jamaica og skoða meira og fara á ströndina og svona. Ég keypti mér Bob Marley grímu :P elskann.

Anyhow

þetta var maggna, þið skoðið þetta bara á myspeisinu mínu og sjáið þetta allt saman svo ég þurfi ekki að skrifa allt hérna.

Ég kom heim fyrir viku síðan, verslaði mér slatta af snyrtivörum, mestmegnis hárvörur, keyptu mér alla K-pack línuna frá Joico sem er ansi stór, finnst mér, einhverjar 6 túbur, og svo Redken línuna, og fullt af drasli frá Bed Head, svo eru 4 andlitskrem í notkun 8| og aðeins af drasli úr Victoriu Secret, ég er búin að kaupa birgðir fyrir næstu 2 árin allavegana. Keypti mér engar buxur þarna nema bara 2 þægilega heimabuxur úr Victoriu secret, keyptu mer bara kjóla og boli og eitthvað, jú geggjaða hælaskó reyndar, allt önnur tíska þarna, sá t.d engar flottar buxur þarna allar með einhverju glimmeri og svoleiðis.

Tryggvi elsku ástin mín kemur ekki heim fyr en 31.mai :cry: en hann ætlar að reyna koma eftir skólann áður en lokaprófin byrja, þá kikir hann til íslands í tvær vikur eða svo, í apríl semsagt vona það svo innilega!!!

Ég komst í gegn eins og ekkert væri, var með Iphone og nýja ferðatölvu, myndavél og síma, var ekkert stoppuð og mjög ánægð með það. Ef ég hefði verið að vinna þarna hefði mig nú grunað eitthvað, ponku lítil stelpa með 3 stórar ferðatöskur og voru að slitna því þær voru svo stútfullar og það var alveg augljóst :lol: svo er maður bara komin heim í þennan viðbjóðslega kulda og skóladaga. (boring)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 03:57:04 / jara109

Fimmtudagurinn 29.Nóvember

Ég hef eitt svo skemmtilegt að segja ykkur!!:haha::haha:

17.desember erum ég, Tryggvi og Pétur að fara í siglingu á skemmtiferðaskipi í viku minnir mig, matur innifalin, erum með oceanview allt saman á 26 þúsund kr! Það er sundlaugagarður í skipinu, veitingastaðir, sundlaug, þvílikt flottur staður til að liggja í sólbaði efst á skipinu, það er SPA með líkamsræktarstöð og öllu tilheyrandi. :haha::haha::haha:

Við förum til Jamaica og Cayman Island skal sýna ykkur myndir, vissi ekkert um þetta Cayman Island en gvuð, þetta er sjúkt.

 

 Cayman Island.

Cayman Island.

Cayman Island

og svo Jamaica..

Jamaica

Jamaica

Já krakkar mínir..þetta er draumurinn. Ég er svo ógeðslega spennt þið bara trúið því ekki!

Við komum heim og keyrum beint til Orlando og verðum hjá afa og ömmu um jólin, ætlum i Universal Studios og sundlaugarða og bara chilla. 8)

Jæjja ætlaði bara aðeins að monta mig.

Kveðja Jara Sól.


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 22:15:23 / jara109

Föstudagurinn 9.nóvember

Hæhæ. Allt gott að frétta hér..þessi vika var svna rosa fljót að líða, sem er alveg gríðalega gott:haha: get verið aðeins meira með Tryggva mínum þá;*

Ég varð svo heimilisleg áðan að ég bara þreif!! reyndar ekki allt húsið..en ég tók eldhúsið vaskann og svo er ekket grín að þrífa þessar hellur..ekket smá skítugar :whut: svo baðherbergið mitt og Tryggva og líka Sæla, ætlaði að koma þeim á óvart og þegar ég var að labba úr minu herbergi yfir í Sæla herbergið með tusku i annari og klósetthreinsi i hinni mættu þeir ekki bara í dyrunum.

Við erum svo bara að fara í Wal*mart á eftir að kaupa i matin, ætlum örugglega út að borða svo í kvöld :)

heyriði ég var í mollinu i fyrradag surprise??!!! og já ég var eitthvað inni Victoriu Secret að skoða þægilega heimagalla þegar einhver blökkumaður kemur í jakkafötum til min og byrjar að babbla eitthvað og ég skil ekki orð að því sem hann segir því hann kynnir sig ekki eða neitt byrjar bara að tala..og það eina sem ég skildi var í lokinn ''and we have chosen you!:D'' ég bara uu what? chosen? og svo fór hann e-h að útskyra..þetta er semsagt 2 frímiðar en ég borgaði samt 3000 kall fyrir þetta, já ''frímiðar'' í Disney World! :haha: 4 dagar á hóteli með öllu tilheyrandi 4 stjörnu hótel í þokkabót! og svo fáum við að velja um eitthvað þrennt sem er í boði og við þurfum að borga að sjálfsögðu..en þetta var eiginlega fyrir 4 þetta tilboð þess vegna þurftum við að bðra þennan 3000 kall það var fyrir hina tvo síðan voru 2 frímiðar fyrir okkur tryggva, þannig við megum bjóða 2 með okkur. Allaveganna þetta hótel er við Disney World og þessi miði sem hann lét mig fá má ég nota hvenær sem er í eitt og hálft ár. Ég vil fara bara áður en ég fer heim í Janúar, gera þetta þá bara í Desember þegar Tryggvi hættir í skólanum. Ég held að þetta verði geðveikt gaman, ég veit ekki hvað svona pakki kostar, 4 dagar á 4 stjörnu hóteli með öllu, og inn i Disney World, efast um að það se bara 3000 kall plús það að þetta er fyrir 4. Djöfull var ég heppin þarna! :P

Svo styttist í Thanks givin, það er nuna 22 nóv, svo er 23 nóv sem heitir Black friday(svartur föstudagur??) veit ekki alveg afhverju þessi dagur er kallaður það, en þá byrja ÚTSÖLUR!! :o

Hvernig er hægt að réttlæta þessi verð heima á íslandi á öllu? Ég t.d ætla kaupa mér laptop áður en ég fer heim, og heim kostar þetta yfir 150 kall og yfir ef þú ætlar að fá þér almennilega tölvu, en hérna er þetta svona 50 þúsund kall. á venjulegu verði..svo fer þetta allt á útsölu núna 23 nóv og eftir jól. Ég til dæmis er búin að vera skoða flotta Toshiba ferðaölvu og hun kostar 45 þúsund, ætla samt að bíða og sjá hvort hún verði lækkuð niður núna á útsölunum. En svo geturu auðvitað fengið dýra tölvu og þá eru þetta einhverjar svaðalegar tölvur með svona og svona..ég þarf bara að komast á netið, og hafa microsoft word og Itunes og kanski nokkrar bíómyndir þá er ég góð ;)

en jæjaa..held það sé best að fara drífa sig í shower eða eitthvað, erum að fara ná í nýju gleraugun hans Tryggva :P

kveðja úr hitanum.

Jara.


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 02:11:48 / jara109

Þriðjudagurinn 6.nóvember

Jæjja krakkar nú er ég að pæla í einu..er með djúpar pælingar. Veltið þessu fyrir ykkur.

Hvernig er spegill á litinn? :$  og ef það væri ekkert fyrir framan spegilinn hvað myndi hann þá sýna eða hvernig væri hann þá lítinn. myndi hann sýna svart, grænt , hvítt...

en jæjja ég og Tryggvi erum að fara horfa á Last King og Scotland..8| úff..hún tekur á. Svo sorgleg, og byggð á sönnum atburðum, er að fara horfa á hana í annað sinn..

 ég ætla hafa lag dagsins. sem er 

Nick Cave - Where the wild roses grow hann er bara góður þessi tónlistarmaður.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 16:27:55 / jara109

Þriðjudagurinn 30.október.

Hæhæ :) Það er bara allt gott að frétta af mér hérna frá Flórída, ég hef það bara ógeðslega gott!! Það er alltaf gott veður hérna..sama hvaða tími er dagsins, gott veður nótt og dag..alltaf sirka svona 25 gráður þegar líða fer að kvöldi..það hefur ekki komið sól frá því ég kom hingað, svo kom alltíeinu sól í fyrradag og í gær og ég svona skaðbrann á öxlunum og í framan..en það er í lagi ég er duglegað bera á mig aloe vera og svona, maður brennur alltaf fyrst..hef ekki farið lengi í svona heita og sterka sól! :$

Á afmælisdeginum mínum fórum við íslendingarnir út að borða, á stað sem heitir The Cheescake Factory ógeðslega góður matur þarna..fullt af ostakökum og góður matur. Svo fékk ég afmælisís frá þjónunum og þeir sungu cheescake afmælissöng fyrir mig hehe :D þetta var bara magnað kvöld..svo fórum við Sigrún, Einar ég og Tryggvi og Jói bróir Einars heim að  horfa á mynd sem ég keypti á 10 dollara í Walmart Firewall með Harrison Ford, horfðum á hana hérna heima í 50" sjónvarpinu ''okkar'' Sæli á það. ;)

Kvöldið eftir fórum við út að borða aftur, eða ég kalla það svosem ekkert að fara út að borða ef við fáum okkur bara pítsu, allavega þá fórum við á besta pitsu staðinn í bænum! eldbakaðar pitsur og vááá hvað þær voru góðar..8) svo eftir matinn fórum við Tryggvi, Jói, Fáfnir og Golli í bíó á Saw 4 ojj hún er ógeðsleg..en góð. er byrjað að sýna hana heima á Íslandi??

Svo er maður náttúrulega í fjarnámi..gaman gaman. Ég er í dönsk, íslensku og ensku. Mér finnst danska svo erfið :^) ooohhh!!! en ef ég hefði ekki þessa blessuðu orðabók sem ég er með á netinu edda.is/vefbaekur þá væri ég sko í djúpum skít, hún hjálpar mér allavega helling!

Í gær keypti ég mér kort í ræktina, þessi glæsilega rækt líka! keypti mér kort alveg þangað til 22 janúar því þá á ég að koma heim! fæ ekki að vera lengur...ég er að lyfta bara enga brennslu! þarf ekkert á því að halda..já og ég vaknaði með svona svakalega strengi!! úff..plús brunan á öxlunum ekki góð samsetning. :cry: svo förum við kanski í dag aftur, ég og Tryggvi getum aldrei bara farið eitthvert ef við viljum því við erum ekki á neinum bíl, þetta er svo fáranlegt hérna í bandaríkjunum að hálfa væri nóg.ef einhver annars á að keyra bílinn hans Sæla þaf hann að borga aðra eins tryggingu ekki nóg að vera með eina..og á er það bara orðið dýrt ef Tryggvi þarf líka að borga,

svo er ég með eina sögu...það eru strákar hérna að leigja saman í hverfinu, og einn strákurinn keypti sér Porch eða eitthvað álíka allavega ógeðslega dýran bíl og tryggingarnar voru það háar að það máttu allir keyra bílinn án þess að borga tryggingu NEMA þeir sem búa með honum. skiljiði þetta?? ekki ég allavega!! þetta er svo fáranlegt..svo eftir kl 2 á nóttunu má ekki afreiða áfengi..Golli stökk inni búð sama kvöld og ég kom hingað og ætlaði að kaupa sér bjór og gellan sagði bara ''no way i'm going to jail'' klukkan var á slaginu 2!! pælið í þessu..þetta er allt svona strangt hérna. Það eru líka allstaðar löggur án gríns..ALLSTAÐAR sem þú lítur serðu löggubíl eða nokkra. Svo flýgur þyrla hérna oft yfir á kvöldin..bara lögguþyrla.

Það eru ALLIR beðnir um skilríki sama hversu gamall þú lítur út fyrir að vera..það er 21 ára allstaðar inn! ef þú ert 50 ára þá ertu beðin um skilríki, þetta er alt mjög spes hérna...en fínt að sumu leyti mjög lítið að glæpum framdir sem er bara hið besta mál..fólk bara þori ekkert að gera neitt sem má ekki gera því það er tekið svo hrikalega strangt á þessu.

Ég fór á djammið síðustu helgi, mjög gaman ég sigrún og Bryndís fórum saman og náðum í einn strák og kærustu hans, fórum á stað sem heitir Noodles- núðlurnar mjög heillandi! það var mjög fínt..tónlistin að sjálfsögðu betri heima. ;) svo loka allir skemmtistaðir herna kl 2 á nóttu heheh...jáá þannig að það var ekki farið að sofa seint þetta kvöld.

En jæjja..er þetta ekki komið nóg...þið nennið örugglega ekkert að lesa um lög og reglur hérna.

 Ég er búin að fara nokkum sinnum í mollin herna :$ mjög flottar búðir hérna!! búin að kaupa mér slatta af nærfötum í Victoriu Secret fékk einmitt svoleiðis frá Tryggva í afmælisgjöf:haha:

Við ''crewið'' hehe ég Sigrún Einar og co og Tryggvi og ég fórum í moll sem er svona 20 mintutur að keyra,, þetta er bara moll sem er úti..ein löng gata og nokkrar þversum inná milli þar voru búðir eins og Calvin Klein , Guess, Puma, Pac sun sem seldi Volcom og DC og svoleiðis mjög flott búð, ég keypti mér bara þar, fýla mollið heima betur...þar er ALLT það er svo stórt..!! 

heyriði..ég ætla ekki að hafa þetta lengra...takk fyrir að lesa :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 20:46:34 / jara109

Miðvikudagurinn 24.oktober

Jæjja þá er ég komin út!!!!!:haha::haha:
Þetta er yndislegt!! svo flottur bær og flottar verslanir, flott sundlaug, yndislegt fólk, bara ALLT! mig langar að eiga heima hérna...:S það er spurning?
Það er FULLT af löggum hérna..þetta er svo sjuklega verndað hérna..sem er bara mjög gott;) þannig að mamma þú getur verið róleg.
Ég var mætt á kl 21 á florida tima í gærkvöldi, og svo náðu strákarnir í mig. Fáfnir og Tryggvi á flugvél, svo flugum við til Naples vorum svona 1 og hálfann tima.
við fórum í mati til Sigrúnar og Einars, Einar er með Tryggva i skólanum að læra, og eftir það fóru strákarnir í skólann. Ég, Sigrún, Jói bróðir Einars og stelpurnar þeirr tvær sem eru svo ógeðslega sætar og krúttlegar, fórum öll saman í mollið, ég keypti mér mjög flottann kjól, tösku,og rauða hettupeysu sem er stutterma. Allt á 4000. Svo bikini í Macy's.
Tryggvi er komin heim úr skólanum, og við erum aftur að fara í mollið þarf að kaupa mér ýmislegt. hárvörur og svon, skildi það allt eftir heima..svo er bara spurning hvað við eigum að borða í kvöld, förum kanski í Walmart og kaupum i matinn sjáum til :haha:
Ég verð svo dugleg að blogga og setja inn myndir..ætla setja allar myndirnar inn á
www.myspace.com/jarasol
en jæjja þarf að þjóta elskurnar..
kveðja úr sólinni!!8)
Það eru komnar myndir inná www.myspace.com/jarasol, gat ekki sett myndir inn á þessa síðu þannig að ég setti myndir fyrir þá sem eru ekki með myspace inn á jaran.bloggar.is 
Mamma! farðu nu á msn svo ég geti talað við þig! hvað er netfangið þitt? ætlaru að láta mig svelta hérna :( nei djók.

» 14 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 23:06:20 / jara109

Miðvikudagurinn 26.September

Sæl. Ég ætla ekkert að blogga fyr en ég kem út.

Ég fer semsagt til Flórída 23.oktober! mér finnst alltof langt í það..Tryggvi fór 31.Ágúst snemma um morguninn og ég er að deyja úr söknuði :cry: er lika mjög oft pirruð á því að þurfa bíða!! :^):^):^):^)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 15:53:58 / jara109

sunnudagurinn 12.ágúst

loksins loksins:!::!::D

Ég hreinlega hef ekki nennt og getað bloggað :!:

Það hefur lítið á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast. Bara vinna og vinna. Vann um alla versló var opið til miðnætti frá 10 um morguninn báða dagana en opið til 20 á sunnudaginn. Svo var frí að sjálfsögðu á mánudeginum. Ég var að vinna til 00 báða dagana og ég var svo löt að ég fór beint heim að sofa...var þokkalega þreytt í fótunum á laugardaginn. vorum það öll!!

Svo næst er akureyrarvakan og þá er opið til miðnættis aftur. Allir að mæta.

Svo var jarðaförin hjá afa Tryggva..ekki vissi ég að það væri til svona vinsæll maður. þegar við komum úr kirkjunni var troðið af fólki fyrir utan kirkjuna mér bara brá! það voru svona 500 manns í erfiðdrykkjunni. Rosalega falleg jarðaför. hvíldu í friði elsku Skírnir.

31.ágúst fer Tryggvi minn frá mér til Flórída! vá hvað ég á eftir að sakna hans á meðan ég verð hérna heima að vinna og læra. Ég ætla út bara 15-20 oktober. á eftir að panta flug ætlaði að gera það í gær og fyrradag en í bæði skiptin gleymdi ég að ég ætlaði að fá afleggjara af kortinu hjá fósturpabbanum  hann er með eitthvað svaðalegt kort það besta á markaðnum í dag. Ætla nýta mér það. Úff hlakka svo til!!!!!!!!:haha:

mig langar mest af öllu af fara til Bahamas, Hollywood, og New York þegar ég fer út.

anywho ég ætla hætta þessu í bili.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 23:51:07 / jara109

Mánudagurinn 9.júli

Sæl;)

það er 9 júli. Styttist óðum í Flórída. Mig hlakkar svo ógeðslega til og það er svo týpískt að þetta verða tvö ár að líða:lol: er það ekki alltaf svoleiðis eða?

Tryggvi enn á sjó. Hann væri að koma kl 7 í fyrramálið ef þessi andskotans útgerðamaður eða hvað sem hann er myndi bara leyfa þeim að koma heim! eins og alltaf var ætlast til..en neinei hann breytti dagsetningunni í 14 :^) okei veit það er ekki langur timi..EN hann er lengi að líða ef maður er ógeðslega spenntur..og telur dagana..þið hljótið að kannast við það! svo var hann á túr kom heim í 4 daga og fór á þennan 40 daga túr er beisiklí ekki búin að vera með honum í 2 mánuði eða svo :$

Svo ætlar Tryggvi hardcore í endajæxlatöku á allar 4!! hann ætlar að gera þetta allt í einu!! crazy!8| ég þori ekki að gera eina tönn..enda ekki komin endajaxl :$

Ég er komin langleiðina í að lita mig ljóst aftur..hún Hildur að meika það! hef aldrei séð svona fljóta breytinug eins og hjá henni! Eva systir er búin að fara 3sinnum og er orðin eins og ég, ég er búin að fara einu sinni..tel nú ekki litunina hjá Medúllu með:| Þar sem þau settu heillit og það lýstist ekki neitt.

Það voru Tax Free dagar í hár og heilsu! ég missti mig! vá hvað maður verður sjúkur þegar maður heyrir ''Útsala'' og maður bara gvuuuð!!  verð að fara og versla! ég er svo að græða á þessu..hahaha alveg klikkuð :P en ja..ég var svo heppinn að fara í litun 5 júli , og keypti mér RISA BED HED sjampóbrúsa fyrir mig og annan handa mömmu daginn eftir og meik frá Guirlan og Elisabeth arden honey drops body lotion geðveikt boddy cream!! mæli eindregið með því..og svo já. held það hafi ekki verið fleira, ég missti mig ekki eins mikið og mér fanns ég hafa gert hehe8) 

afhverju þarf bílprófið að vera svona fáranlega dýrt :( ég á svo engann veginn efni á þessu:!: juju á alveg efni á því..en bara tými ekki peningnum í þetta! 150 þúsund! Halló!!:evil::evil:   En það er hellingsmunur að vera komin með þeta bílpróf, því dreif maður sig ekki bara í þetta strax? 8)

En jæjja, þarf eiginlega að stökkva í hraðbankann!

KVITTIÐ:!::!::!::!::!::!:

-J.S.G

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 21:52:47 / jara109

Þriðjudagurinn 3.júlí

Hrikalegustu raðmorðingjar sögunnar

Það er eitthvað við sjúkan hugarheim raðmorðingjans sem heillar mannskepnuna. Í það minnsta hafa bækur, kvikmyndir og sjónvarspefni um slíka menn jafnan vakið mikla athygli og náð óheyrilegum vinsældum. Síðasta dæmið er myndin Zodiac sem fjallar um samnefndan raðmorðingja frá Kaliforníu. Zodiac er hinsvegar eins og Jesúbarnið sjálft í samanburði við verstu fjöldamorðingja sögunnar. Panama tók saman þá allra svæsnustu og djöfullegustu.

 

John Wayne Gacy - Trúðamorðinginn

 

Hver var hann?
John Wayne Gacy fæddist árið 1942. Hann ólst upp á alvarlega skemmdu heimili, pabbi hans var alkóhólisti og lamdi móður hans reglulega. John gifti sig 1964 en skildi við konu sína aðeins fjórum áður síðar eftir að hann var sakfelldur fyrir að níðast á börnum. Hann stofnaði verktakafyrirtæki eftir að hann slapp úr fangelsi og hóf þá fyrir alvöru feril sinn sem morðingi. Hann lifði tvöföldu lífi, var virtur samfélagsþegn á daginn, en morðingi og pervert á nóttunni. Gacy hélt oft teiti og klæddi sig þá upp sem trúður til að skemmta börnunum í hverfinu. Því fékk hann hið alræmda viðurnefni Trúðamorðinginn.

Hvað gerði hann?
Fórnarlömb Gacys voru öll ungir og myndarlegir karlmenn, sumir þeirra vændiskarlar. Sjálfur sagðist hann hafa verið tvíkynhneigður, en virðist hafa verið haldinn alvarlegu sjálfshatri. Í það minnsta talaði hann mikið um hversu heitt hann hataði homma þrátt fyrir að hafa hommaklám á heilanum. Hann narraði þessa ungu menn heim til sín og plataði þá til að setja á sig handjárn. Þegar þeir voru varnarlausir vegna handjárnanna kyrkti hann þá og nauðgaði um leið. Hann geymdi líkin oft í nokkra klukkutíma og jafnvel daga undir rúmi hjá sér áður en hann gróf þau undir húsinu sínu. Það var óbærilegur fnykurinn inni hjá honum sem kom svo lögreglumönnum á sporið þegar hann var handtekinn árið 1978.

Fjöldi fórnarlamba:
Hann játaði morð á 33 karlmönnum á unglingsaldri. Þar af gróf hann 27 þeirra undir húsinu sínu.

Örlög:
John var dæmdur til dauða og tekinn af lífi með sprautu árið 1994. Það skapaðist heljarmikil stemning fyrir utan fangelsið þegar ungmenni komu til að fagna aftökunni. Síðustu orð Johns voru: „You can kiss my ass," en þau mælti hann við einn fangavörðinn.

 

Richard Ramirez - Næturmörðurinn

 

Hver er hann?
Richard Ramirez fæddist árið 1960 í El Paso í Texasfylki. Hann var 13 ára þegar hann varð vitni að geðsjúkum frænda sínum skjóta konuna sína til að þagga niður í henni. Sá hafði barist í Víetnamstríðinu og sýndi Richard oft myndir af Víetnömum sem hann hafði aflimað og gengið í skrokk á. Eftir morðið hóf hann að neyta eiturlyfja í stórum stíl. Lítið er vitað hvað hann aðhafðist þar til hann hóf ógnaröldu sína árið 1984. Talið er að hann hafi látið smáglæpi nægja þar til hann hélt Kaliforníubúum í heljargreipum með fjölmörgum mannránum, nauðgunum og morðum.

Hvað gerði hann?
Richard Ramirez er einn sjúkur fantur. Fyrsta morð hans sem vitað er af var á 79 ára gamalli konu, Jennie Wincow. Hann braust inn til hennar, stakk hana og skar hana á háls. Hann varð svo kynferðislega æstur af drápinu að hann nauðgaði líkinu áður en hann yfirgaf vetvanginn. Fórnarlömbin urðu svo mun fleiri, þar á meðal kona sem hann nauðgaði fyrir framan tólf ára son hennar og áttræð kona sem hann myrti og skar fimmstjörnuna á innanvert læri hennar á eftir. Hann náðist svo þegar eitt fórnarlambið sem lifði af gat lýst honum og bíl hans fyrir lögreglunni. Það birtust myndir af honum í öllum fjölmiðlum og einum degi síðar réðst hópur fólks að honum úti á götu og gekk svo illa í skrokk á honum að hann lést næstum. Hann var í kjölfarið handtekinn.

Fjöldi fórnarlamba?
Ekki er vitað hversu mörg fórnarlömbin voru, en hann var sakfelldur fyrir 13 morð. Líklegast hafa þau þó verið mun fleiri, svo ekki sé minnst á þá sem sluppu lifandi en munu aldrei jafna sig andlega.

Örlög:
Richard var dæmdur til dauða í gasklefa árið 1989 og bíður ennþá örlaga sinna á dauðadeild. Síðustu orð hans er hann gekk út úr dómsalnum voru: „Við sjáumst í Disneylandi!" Richard átti marga kvenkyns aðdáendur, enda vitað mál hve Bandaríkjamenn eru sturlaðir. Hann giftist svo einni þeirra í fangelsinu, en sú hefur svarið að fremja sjálfsmorð um leið og Richard verður tekinn af lífi.

 

Ed Gein - Klæðskerinn

 

Hver var hann?
Ed Gein fæddist árið 1906 og bjó á afviknum sveitabæ í Wisconsin ásamt drykkfelldum föður og sturlaðri móður. Eftir að pabbi hans dó tók móðirin að ofvernda hann og bróðir hans svo það jaðraði við sjúkleika. Hún passaði upp á að þeir eignuðust enga vini og sagði þeim að allar konur í heiminum, nema hún sjálf auðvitað, væru hórur og mellur og að kynlíf væri saurugt. Eitt sinn gekk hún inn á Ed að fróa sér í baði og hellti þá yfir hann brennandi heitu vatni til að kenna honum lexíu. Eins og gefur að skilja var Ed afskaplega undarlegt barn og var lagður heiftarlega í einelti. Þegar móðir hans dó svo missti hann vitið og sjúkleikinn tók öll völd.

Hvað gerði hann?
Ed Gein var ekki sá versti hvað varðar fjölda fórnarlamba, en hann slær flest met í hreinni sturlun. Þegar lögreglumenn gerðu húsleit hjá honum árið 1957 fundust óteljandi munir gerðir úr líkamsleifum dauðra kvenna sem hann hafði ýmist grafið upp eða myrt. Þar á meðal var belti úr geirvörtum, súpuskálar úr höfuðkúpum, grímur úr mannsandlitum sem hann hafði flett af líkum, lampaskermir og sófar úr mannshúð og þar að auki hið allra sturlaðasta; heill galli úr húð eins fórnarlambsins. Honum klæddist Ed þegar hann fór í hlutverkaleik og þóttist vera móðir sín. Gein sagðist þó aldrei hafa haft samfarir við líkin, því honum þótti þau lykta of illa.

Fjöldi fórnarlamba?
Vitað er um tvö fórnarlömb, en auk þeirra hurfu um sex manns til viðbótar í nágrenni við Ed, og er almennt talið að hann hafi einnig borið ábyrgð á dauða þeirra.

Örlög:
Ed var dæmdur ósakhæfur vegna geðveilu enda sjá flestir að hann var ekki eins og fólk er flest. Hann lést svo úr hjartaáfalli árið 1984 á geðsjúkrahúsi fyrir afbrotamenn.

 

Dr. H. H. Holmes - Dr. Dauði

 

Hver var hann?
Herman W. Mudget, eða Dr. Holmes eins og hann kallaði sig, fæddist árið 1860 og er oft kallaður fyrsti raðmorðingi Bandaríkjanna. Hann átti drykkfelldan föður og var lagður í einelti sem barn. Hann útskrifaðist úr lyfjafræðinámi og starfaði sem apótekari, auk þess sem hann stóð í alls kyns undarlegu gróðabraski. Hann tók sér svo bólfestu í apóteki einu eftir að hann hafði myrt lyfsalann sem þar starfaði og fjölskyldu hans og hófst þá morðferillinn fyrir alvöru.

Hvað gerði hann?
Hann lét reisa risastóra þriggja hæða byggingu á móti apótekinu „sínu", sem heimamenn kölluðu Kastalann. Á neðstu hæðinni virtist allt með felldu, þar leigði hann út verslunarpláss auk þess sem hann rak hótel í hluta byggingarinnar. Efri hæðirnar voru hinsvegar allt annað en eðlilegar. Hann hafði skipt reglulega um verktaka svo enginn áttaði sig á heildarmynd hússins. Þar voru yfir hundrað gluggalaus herbergi, endalausir ranghalar, stigar sem enduðu hvergi og hurðir sem opnuðust í eina átt, nú eða alls ekki. Í þetta völundarhús plataði Holmes síðan fórnarlömb sín, myrti þau í kompunum eða kæfði þau í sérhönnuðum gasklefum í byggingunni. Líkin seldi hann svo til háskóla í vísindatilgangi.

Fjöldi fórnarlamba?
Dr. Holmes tókst að halda þessari iðju sinni áfram óáreittur um margra ára skeið og því er engin leið til að segja til um fjölda fórnarlamba. Hann játaði á sig 27 morð, en margir telja að þau gætu verið tífalt fleiri.

Örlög:
Holmes var gripinn árið 1895 og hengdur árið eftir. Hann beindi síðustu orðum sínum að böðlinum og bað hann að taka sér sinn tíma og herða reipið vel.

 

Dennis Rader - BTK

 

Hver er hann?
Dennis Rader fæddist árið 1942 og þurfti ekki að þola nein meiriháttar áföll í æsku. Hann gekk í flugherinn og vann fyrir sér í ýmsum láglaunastörfum eftir að hann lauk herþjónustu sinni. Hann var skátaforingi, mikils metinn í kirkjusöfnuði Sedgewick í Wichita og var auk þess skráður í Repúblikanaflokkinn. Hann var giftur og eignaðist tvö börn með konu sinni. Hún skildi hins vegar við hann skömmu eftir að hann var handtekinn.

Hvað gerði hann?
BTK stendur fyrir Bind, torture, kill, en það lýsir því sem Dennis gerði ágætlega. Hann fann sér fórnarlömb af handahófi, sat um þau og kynnti sér lífshætti þeirra og lagði að lokum til atlögu. Hann skar á allar símasnúrur og kom sér svo fyrir inni hjá fórnarlömbunum. Þegar þau komu heim batt hann þau og laug því jafnvel að þeim að hann væri nauðgari til að róa þau niður. Þau gerðu þá sitt besta til að fullnægja draumórum hans með það að markmiði að losna sem fyrst úr prísundinni. Hann endaði hins vegar á að drepa öll fórnarlömb sín. Yfirleitt kyrkti hann fórnarlömbin þar til þau misstu meðvitund, leyfði þeim svo að ranka við sér og kyrkti þau þá að nýju. Að lokum kyrkti hann þau þar til þau létust og fróaði sér um leið.

Fjöldi fórnarlamba:
Lítill vafi leikur á fjölda fórnarlambanna, en þau eru 10 talsins.

Örlög:
BTK myrti fjölda manns á árunum 1974-'91. Eftir það tók hann sér langt hlé en lét aftur á sér kræla árið 2004 og fór þá að senda bréf til fjölmiðla og lögreglu, svipað og Zodiac. Hann var í kjölfarið handtekinn og var dæmdur í tífalt lífstíðarfangelsi - eitt fyrir hvert fórnarlamb.

 

Mig langar nú bara ekkert til Bandaríkjanna lengur :whut: ógeðis menn!! hvernig er þetta eiginlega hægt???

Rosalega er gott veður!! og ég var ekki að vinna í dag úújee8) fór úti sólbað og beint í sund með litlu systir og Elínu vinkonu. Það var æði!

styttist óðum í kallinn minn..ég er orðin frekar spennt, innan við vika höldum við..annað hvort kemur hann 10 eða 13 júlí. vonandi 10 júli!! þá getum við farið útað borða og svona gert eitthvað, því annars ef hann kemur 13 þá fer hann í endajæxla töku og tekur alla 4 :(

hvaða púður eða meik er best?? þarf að kaupa mér eitt styttki svoleiðis..allir að segja mér :haha:

heimta kvitt..þið eruð búin að vera þokkalega slök síðustu daga:$


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 16:12:42 / jara109

Þriðjudagurinn 26.júni

Er komin með bílpróf!! eruði að trúa þessu..loksins!!:haha:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 14:28:38 / jara109

Sunnudagur 24.júni

 djöfull er næs að vera í fríi ;) gerist ekki oft:!:

Hvar er nú sólin eiginlega? hélt að það ætti að vera geggjað veður í dag, hef svosem ekki farið út en það er engin sól. Spurning um að fara bara út að labba, maður hefði gott af því 8)

Það hefur lítið á daga mína drifið! nema vera með Sólrunu..yndislegt að við séum farnar að hittast svona mikið aftur...love it:lol:

Gerði ekkert sérstakt um helgina...ætluðum að djamma á föstudaginn en það gerðist ekki en fórum uppstrílaðar á rúntinn í staðinn ;) en í gær var bara leti...keyptum 2 snakk poka og fullt af tyrkis pepper sleikjóum og tókum tvær videospólur, Employer of the month er snilld...hehe. Fékk nokkuð oft aulahroll...2 gæjjar að keppast um að vera starfsmaður mánaðarins í verslun eins og Bónus bara aðeins stærri! svo var gæinn hraðasti skannarinn á norðurlandi heheh frekar aulalegt. en ja mæli með henni ef þið eruð ekki búin að sjá hana....

 Ég og Hjördís kíktum í ljós saman á föstudaginn og spjölluðum heillengi! enda mikið uppsafnað. fórum smá í kjarnaskóg, svo þurfti ég að pissa og ætlaði að gera það bara í náttúrunni ég var klár og allt neinei kom ekki bara heilfjölskylda á móti mér svona 20 skrefum frá mér hehe og ég bara fokk!! stökk upp og girti upp um mig heheh...:) frekar fyndið

Tryggvi minn kemur 10 júli, vildi að hann kæmi fyr. Sakna hans svo ógeðslega mikið ;*;* mér finnst hann búin að vera á sjó bara endalaust, hann fór 4 júni..en hann er að vinna sér inn fyrir Florida ferðinni ég hugga mér við það ;) að við erum nú að fara vera saman í 7 mánuði..not bad!!;) 

Við Tryggvi erum búin að vera saman í eitt og hálft ár nákvæmlega..met okkar beggja! hihi. :P

 

En ég hef ekkert að segja meira..er nú buin
You Are A Professional Girlfriend!

You are the perfect girlfriend - big surprise!
Heaven knows you've had enough practice. That's why you're a total pro.
If there was an Emily Post of girlfriends, it would be you.
You know how to act in every situation ... to make both you and your guy happy.

tók svona próf uppá djókið, http://www.blogthings.com/ tjekkit


að blogga 2 núna með stuttu millibili þannig hundskist til að kvitta!! :klikk:

 01:57 ...gvuð hvað ég er mikið tölvunörd

Rakst á þetta á netinu..vildi bara deila þessu með ykkur.

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=242380

grrrrrrrrr.....

ojj ég gogglaði 50 sent og fékk þetta!!!!!!!!!!!!! OJOJOJOJ

 

Hérna kemur sá rétti...

mér finnst hann þokkalega HOT!

 

Jæjja..nú er nóg komið...allavega af myndum. Góða nott.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 00:38:00 / jara109

Fimmtudagurinn 22.júní

Sælar...hvað segiði þá:D 

æji vá ég get svo engan veginn beðið eftir því að komast út!! OMÆ..smá tilhlökkun hérna megin8)

Tryggvi kom í land í dag, reyndar bara fyrir sunnan og bara í einn dag, þeir eru ábyggilega farnir  af stað aftur:cry: miss you!!! en ja djöfull var ég pirruð...var svo að vona að hann kæmi bara norður í dag, en nei þeir sögðust ætla leggja af stað kl 7 uym kvöldið, þannig það yrði lítill tími, ohh heyrðu..svo eru þeir bara að fara núna...dísess ég var svo pirruð!! Tryggvi hefði getað komið norður og knúsað mig ;*

Það er samt rosalega lítið að frétta af mér!! eins og alltaf...NEI GVUUUÐ hvernig get ég gleymt þessu!! ég náði bóklega hlutanum í bílprófinu:haha::haha::haha::haha: shitt er svo þokkalega ánægð með þetta..var svo buin að ákveða fall :!::!:   fyrir utan það er ég bara alltaf að vinna í Fargo, rosa gaman hja mér og Heiði og Öbbu ;) uuujee..

Helgin var snilld, fór út báða dagana, kemur fólki eflaust mjög á óvart að JARA SÓL fór á djammið!! en ja ég og Sólrun kiktum aðeins út...skutluðum fyrst Sigrúnu og Óla félaga hennar eithvað og hittum svo Eyþór og Andra, Andri var að fá sér nýjann BMW (sem Heimir átti)silfurlitaðann, nettur...skritið að setjast svo inni gamla Bmw-inn hans Andra, aðeins eldri heh!! bara aðeins!

Svo á Laugardaginn var ég að sjálfsögðu að vinna eins og alla svona stóra daga og þegar er gott veður!! svo tókum ég og Elín og Sólrún okkur til heima hjá Elínu, byrjuðum ekki taka okkur til fyr en um miðnætti...kiktum svo á Capone, í Splashpartýið. Þar var ógeðslega troðið..hitti þar Ragga bró, hef ekki séð hann bara síðan versló einhverntimann fyrir 4 árum eða eithvað, fór svo ekki að sofa fyr en 8 morguninn eftir á Sunnudeginum og ég var að vinna kl 12! :^)

Ég og Hjördís ætlum að kíkja í ljós together á morgunn..!8)

Verð að setja inn gamla mynd af mér...finnst hún svoltið krúttleg.

img187/9452/1000709me7.jpg

haha..ekkert smá barnaleg þarna.

img256/557/1001168ag7.jpg

ég set ekki fleiri...hinar eru ógeðslegar hehe ;)

 

en heyriði..ég er að tala við Tryggva minn i simann ... kvittið!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 15:00:23 / jara109

Þriðjudagurinn 12.Juni

FLORIDA HERE WE COME.

Við Tryggvi og Sæli erum að fara til Flórída eftir 3 mánuði!! munuð vera í 7 mánuði takk fyrir...heila 7 mánuði. Það er að segja þeir, en ég verð kanski aðein styttra útaf VISA dæminu, ferðamenn mega bara vera í 90 daga að gera ekki neitt þarna úti..þurfum að fara á fund með Bandaríska sendiráðinu áður en við förum til að fá visa to U.S.A.

Ég verð bara í fjarnámi þarna úti...því ekkert að ganga hja mer að finna skóla..:( gafst upp..enda ekkert verra að taka þetta bara í fjarnami...tapa ekkert á því! þótt það sé nu svoltið erfiðara..maður hefur engann kennara til að hjalpa manni...við verðum úti yfir jolin!! jiii hvað það verður skritið...en örugglega gaman! hef alltaf verið hja mömmu á jolunum. Já gleymdi að segja það að Tryggvi er semsagt að fara í atvinnuflugið, eða taka bóklega hlutann úti! því það er sma munur um verðið!! 8| kostar 800 þús herna og bara 300 þús úti!! pælið í því!! afhverju fara ekki bara allir út???

þarna mun ég liggja og læra...öfund?

Einungis klukkutima akstur til Miami

 

Lendum fyrst í Orlando og keyrum, eða fljugum til Naples ------> þar sem við verðum

ohh er pinu montin og spennt!! jeminn....hiti alla daga, lært á ströndinni, verslað, allt miklu ódýrara, MC donalds, ég og Tryggvi saman...er hægt að hafa það betra. Er svo spennt að ég er buin að segja öllum þetta svona 3 sinnum....haha alltaf jara þú sagðir mer þetta um daginn og i gær.

Nóg komið um þetta mál allavega...´

Ég er í frii loksins...KAWASAKI skornir loksins komnir!! allir að koma og kaupa..

Tryggvi á sjó, buin að vera í viku eða eithvað! og kemur heim í júli..svo langt í hann eithvað...vil fara fa kallinn heim.

Ég er alveg ein heima, familian farin til Ítalíu í 3 vikur.

Ég ætla ut i sólbað..8)

Allir að vera duglegir að kvitta!!

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 23:48:12 / jara109

Fimmtudagurinn 24.maí

  http://www.b2.is/?sida=tengill&id=238989  Holy moly! tjekkit out! lengstu lappir ever...ég trui nu bara ekki öðru! og horfðið svo á viðtalðið við konuna, er bara í 2 minutur, sjáið hana labba og svona, frekar athyglisvert en óhugnalegt!:|

 

Já ég er semsagt komin hingað aftur..og ekki í fyrsta skiptið. hehe skal bara ekkert vera að skipta aftur. :lol:

En það sem er að frétta af mér er að ég er byrjuð í ökukennslu loksins! :haha:ökukennarinn hélt að sjálfsögðu að ég væri bara 16 ára hehehe ég bara NEI! ég er að verða 18. Er hjá Ingvari, sem er snillingur, og geggjaður Volvoinn..dýrka að keyrann! svo stefni ég á að vera komin með bílprófið í lok júní. jibbí!! hlakka ekkert smá til...mér var alveg sama um bílprófið, en svo þegar ég er byrjuð að keyra svona mikið að þá er ég alveg æst í að fara drífa í þessu bara. ;)

-Jay Leno var að byrja. Snilld

Ég og Kristrún skvisa skiptum um starf, ég fór yfir í Fargó og hún yfir í gallerí. Þetta er fínt, bara oft minna að gera í Fargó og timinn líður þá afskaplega hægt:S en það er kanski bara útaf því að nuna er fólk byrjað að vinna á fullu og mánaðarmótin að koma og svo vantar auðvitað góða veðrið ekki nennir maður einhverju búðarrápi í svona veðri :whut:

Tryggvi elska farin á sjó eina ferðina enn...ég er ekki eins desperet eins og síðustu tvö skiptin, sem er bara gott..ég var gjörsamlega að fara yfir um af söknuði..jesús. Ekki það að ég sakni hans ekki;) svo þegar hann kemur heim af sjó sem verður...ja langt í það allavega þá ætlum við að fjárfesta í rúmi. IQ Care rúm, það flottasta á markaðinum í dag, ekki skritið best að sofa í þeim...ég sef eins og steinn í rúminu hjá mömmu og Gunnari.

Ég þarf að fá ráð!!!!! Tryggvi verður 23 nuna 8 júní, og ég veit ekki hvað ég á að gefa honum í afmælisgjöf. Langar að gefa honum eithvað persónulegt..ég er alveg tóm, Tryggvi er á sjó og les ekki bloggið mitt þannig að hann sér ekkert, endilega koma með uppástungur!!

Í gær fórum ég og Jara á Pirates of the Carrabien 3! Sólrun ætlaði með en var síðan uppselt en ég og Jara vorum bunar að kaupa miða þannig að við fórum tvær, en hittum Huldu og Inga og svona..allt að gerast

Um daginn var ég hármódel fyrir Medullu, Helga klippti mig, eða held hun heitir það. fín klipping...svona sítt að framan og stutt að aftan...gaman að breyta til en ég ætla að láta vaxa aftur, en maður veit aldrei..hmm

Ég ætla að segja þetta gott í bili allavega. Er að fara horfa á Family guy, vinna á morgun! allir að koma í Fargó!!!!!!

-Ný skoðunarkönnun!!!

kveðja Jara Sól.


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 24 janúar
Myspace
Athyglisverðar síður